Þetta eru leiðbeiningar fyrir nemendur, um hvernig jafningjamatið í Canvas virkar. Hægt er að nota það fyrir leiðsagnarmat samnemenda eða jafningjamat.
Í þessum leiðbeiningum hér fer jafningjamatið fram undir nafni (stilling hjá kennara), það er ekki er um nafnleynd að ræða. Ekki er farið í hér hvernig gefin er einkunn en sýnidæmið hér er sett upp sem leiðsagnarmat samnemenda.
Hæfniviðmið:
Eftir að þú hefur farið í gegnum þetta fræðsluefni getur þú framkvæmt jafningjamat í Canvas.
Þegar þú rýnir verkefni samnemenda er mælt með að þú:
- Skrifir athugasemdir inn í verkefni eða/og krotir inn í þau (notir endurgjafatólin, penni, texti, yfirstrikun og fleiri)
- Veljir viðeigandi reiti í námsmatskvarða sem er lýsandi og skrifir athugasemdir inn í línu ef lýsing er ekki alveg rétt sem er valin, þe. hægt að bæta við svo sé alveg skýrt hvað er hægt að gera betur. (Athugaðu að það er kennari sem tengir matskvarða við verkefnið. Það er því mismunandi hvort þú færð matskvarða til að nota þegar þú metur verkefni).
- Gefir heildarumsögn í formi skrifaðs texta eða stuttrar myndbandsupptöku þar sem þú ert í mynd (mjög persónuleg og skemmtileg endurgjöf :)) Þorir þú?
Tutorial
Til að rýna verkefni samnemenda (veita þeim endurgjöf) þarf kennari að vera búinn að úthluta verkefnum til nemenda til að rýna og búið að opna fyrir að rýnin geti hafist.
Þú ferð inn í verkefnaskilahólfið þar sem þú skilaðir verkefninu. Þ.e. velur Verkefni í valmynd og smellir svo á heiti verkefnisins.
Þá kemur verkefnaskilahólfið upp en núna í dálk lengst til hægri á skjánum eru upplýsingar um skilin. Hvenær verkefni var skilað, tengill á Upplýsingar um skil (þe. þín eigin skil) og getur einnig hlaðið verkefninu þínu niður í tölvuna. Athugaðu að ef þú velur að skoða upplýsingar um eigin skil þá getur þú opnað verkefnið þitt í Turnitin til að sjá samsvörun við áður útgefna texta, efni af vefsíðum og nemendaverkefni. Þú getur séð hvar þú kemst í Turnitin skýrsluna á vefslóðinni: http://turnitin.hi.is/fraedsla/canvas/plagiarism-framework/nemendur/setja-verkefni-inn-i-canvas-og-skoda-samsvorunina/ (Tenglar á ytra svæði.)
Varðandi jafningjamatið þá koma upplýsingar um úthlutað jafningjamat fyrir neðan Upplýsingar um skil og Niðurhala verkefni. Ef matið fer fram undir nafni, þá sérðu nöfn þeirra nemenda sem þú hefur fengið úthlutað. Þarna getur þú smellt á nöfn viðkomandi til að geta byrjað!
Neðst eru Athugasemdir, sem eru þær athugasemdir og umsagnir sem þú færð frá öllum sem rýna í / fara yfir verkefnið þitt.
Til að byrja að rýna, veita samnemanda endurgjöf, þá velur þú nafn undir „Úthlutað jafningjamat“
Þá færðu upp síðu fyrir skil þessa nemanda. Þarna er mælt með að byrja á Skoða endurgjöf.
Þá opnast verkefnið í glugga inni á síðunni. Mælt er með að byrja að lesa yfir það og nota endurgjafaverkfærin til að krota inn i það og skrifa athugasemdir.
Þegar þú ert búin að setja athugasemdir inn í verkefnið. Smellir þú á Sýna matskvarði, sem er tengill ofarlega hægra megin á síðunni.
Þú ferð í gegnum matskvarðann og velur reiti í töflunni sem þú telur að lýsi verkefninu sem best. Verður grænt þegar velur og svo kemur lituð lína fyrir neðan þegar þú ert búin(n) að velja reit. Hver lína metur einn þátt í verkefninu og dálkarnir segja til um hversu gott það er. Fyrsti dálkurinn þýðir að það er virkilega gott… á meðan að síðasti dálkurinn þýðir að verkefnaliðinn þarf að bæta verulega.
Athugaðu að þú getur smellt á blöðrutákn fyrir aftan hverja línu og sett inn athugasemd inn í matskvarðatöfluna. Sú athugasemd birtist þá í viðkomandi línu í matstöflunni. Getur verið gott að nota þetta þegar lýsingin í reit sem er valin er ekki alveg nógu góð eða lýsandi. Hér er því hægt að leiðrétta eða bæta við það sem þar stendur.
Áríðandi !!! Þegar þú ert búin(n) að velja reiti og setja inn athugsemdir í línur, verður þú að skrolla alveg niður og smella á Vista athugasemd. Ef þú gerir það ekki þá tapast það sem þú gerðir og þú þarft að byrja upp á nýtt.
Varúð !!! Ekki smella á vista athugasemd fyrr en þú ert búin(n) að velja reit í hverri línu. Eftir að þú hefur vistað getur þú ekki breytt neinu í töflunni, hvorki breytt né klárað (ef þú varst ekki búin(n).
Ef þú gerir mistök, vistar áður en þú ert búin(n) þarftu að tala við kennara sem getur tekið nemandann af þér í jafningjamatinu og sett inn aftur á þig. Allt sem þú varst búin(n) að gera geymist en taflan verður aftur virk, þe. getur breytt hvaða reitir eru valdir og smellt svo á Vista athugasemd.
Til að loka matskvarðanum þá þarftu að skrolla upp og smella á X uppi í hægra horni töflunnar. Athugaðu, ekki gleyma fyrst að smella á Vista athugasemdir fyrir neðan matskvarðatöfluna.
Skrifaðu heildarumsögn fyrir verkefnið og/eða taktu þig upp (með vefmyndavél) og segðu hvað þér finnst. Til að taka þig upp smellir þú á Miðilsathugasemd.
Þú getur líka hengt skrá við .
Mundu eftir að smella á Vista takkann eftir að þú hefur skrifað/talað um verkefnið.
Síðan þarftu að smella á X í efra hægra horni skoðunargluggans, til að loka honum.
Ef þú hefur fleiri samnemendur til að rýna verkefni fyrir þá velur þú heiti verkefnisins efst í glugganum.
Sjáðu hvernig Ragnar, sem þú varst að meta, er núna búinn að fá hak fyrir framan nafnið sitt. Var upphrópunarmerki áður. Merkingin sem er núna segir okkur að þessi nemandi hér Harpa Dögg, sem skjámyndin er frá, er búin að meta Tinnu, Ragnar og Erlu. Harpa á eftir að meta Rebekku sem er ennþá með upphrópunarmerki fyrir framan nafnið.
AUKA FRÆÐSLUMOLI.
Það eru í raun nokkrar leiðir til að fara til baka, sjá rauð strik undir þremur tenglum sem hægt er að nota til að fara til baka.
- Ef þú velur UPP215f efst í vinstra horninu, ferðu inn á forsíðu námskeiðsins
- Ef þú velur heiti verkefnisins ferðu inn í skilaverkefnishólfið og getur annaðhvort skoðað eigið verkefni/endurgjöf eða skoðað verkefni samnemenda sem þú ætlar að rýna og veitt þeim endurgjöf.
- Ef þú velur Verkefni í valmyndinni ferðu undir verkefnin sem eru á námskeiðinu og getur þá valið aftur heiti verkefnisins til að komast aftur inn í að skoða eigin skil eða veita öðrum endurgjöf